Aðalvalmynd

Auglýsing

Do a little dance

andvökurBjörn Ingi

ekki að ég sé andvaka. ég sef bara ágætlega þessa daganna. samviskan tandurhrein. góður

ég get ekki sagt að ég sé latur.., kannski ekki duglegasti maður á jörðinni en varla sá latasti. líklega er ég vinstra meginn við kvarðann, ég er svona vinstri grænn á latur-duglegur kvarðanum.

en það er samt nokkrir venjulegir hlutir sem ég hef óbeit á..:

5-skúra
sem er merkilegt, því mér finnst fínt að sópa..það er bara oft eitthvað svo tilgangslaust að bleyta gólfið..og það sem er tilgangslaust er hryllilegt

4-vaska upp
hins vegar er hreinn unaður að setja í uppþvottavél., pure satisfaction

3-búa um
satt að segja veit ég lítið um það enda ef ég ekki gert það síðan ég var 14 ára og mamma stóð yfir mér

2-að hátta sig
alveg hryllilegt. yfirleitt hátta ég mig ekki fyrr en ég er þreyttur, og þá nenni ég ekki að hátta mig. eigilega ætti maður að hátta sig um kvöldmat..þetta er vítahringur

1-að setjast inn í bíl
alveg gjörsamlega mest óþolandi atferli sem hægt er að hugsa sér. sérstaklega að setjast aftur í í þriggja dyra bíl. já þetta er ekkert djók.. það eru margir sem geta staðfest þetta..þetta er hreinlega bara vandamál hjá mér..fúff

allir að skoða
www.davidorri.com þar eru making of emma mynd myndir.. stórkostlegar

fuzzyBjörn Ingi

ég fékk deja vú í morgun þegar á gekk út,. ég leit niður á hvíta snjóþekjuna sem hefur skagafjörðinn í herkví og sagði með rámri röddu: "djöfull er ógeðslega kalt".

ástæðan fyrir því að ég fékk deja vú er sú að ég hef upplifað sama andartak núna 43 daga í röð..þetta fer bara að vera nokkuð gott

annars er ekki langt þangað til ég tek hatt minn og staf og held á brott, nei aldeilis ekki svo langt..

árósarsamfélagið bíður spennt eftir komu minni og um bréfalúguna berast alls konar bæklingar hvernig ég eigi haga mér við komuna og við hverju ég meigi búast..

fannst góður bæklingurinn sem ég fékk í morgun þar sem mér var bent á að það þykir ekki dónalegt að neita drykk í danmörku og ég var sérstaklega varaður við því að ef ég færi út með dönum, þá ætti ég ekki að reyna að halda í þá í drykkju..mig grunar að þetta eigi ekki eftir að verða proplem af minni hálfu..

um helgina stóð ég í ströngu enda var ég á fullu í upptökum á fyrstu stórmynd stuttmynd, kvikmynda mógúlsins emma madsen.. ég hef starfað með mörgum frábærum leikstjórum í gegnum tíðina en það var einstaklega gaman að fylgjast með tilburðum emma bakvið myndavélina og hann stjórnaði tökunum eins og herforingi á spítti.

frumsýningin verður 15 des. en ég hef trú að emmi verði ekki minni maður en salatbar kormákur og hafi sérsýningu í kvikmyndahúsum skagafjarðar fyrir fyrirmenni enda var öll myndin tekin upp í firðinum..

Roooooxaaane,Björn Ingi

tók mig til og fór í hreina sokka um daginn.. ofboðslega er það þægilegt tilfinning. mæli hreinlega bara með því..já afhverju ekki..meðmæli dagsins

er fyrir sunnan þessa daganna á ráðstefnu. var boðaður suður til að taka þátt í almennum fíflalátum.. meira en til í það.

borat-yees, very nice

erum líka búnir að finna okkur margt til að dunda okkur við til að hafa afsökun fyrir því að gera ekki neitt

fór t.d. í bíó í gær., bond, james bond,. nett svalur. emmi vildi hinsvegar ekki fara í bíó og hafði fram hin ódauðlegu last word:

"Frekar myndi ég sturta mér í klósettið heldur en að fara í bíó"

svo við tókum í hendur og fætur á drengnum og sturtuðum honum niður.. það er höfuðsynd að lýsa yfir staðhæfingum sem menn ætla ekki að standa við

þórður grétar árnason á hinsvegar afrek vikunnar.. við kíktum í eilitla heimsókn til hans á laugardagskvöldið., gripum í spil og svona..

um ellefuleytið lækkar strákurinn í tónlistinni og bendir okkur á að við erum í fjölbýlishúsi og nú þurfum við að lækka í okkur.. við litum á hvorn annan og svo sagði gunnar úr tungu kurteisilega enda ekki maður æsings;
" en dúllegi, ég held að klukkan sé bara ellefu".
dúllegi lítur á klukkuna sína aftur og segir mjög viss í sinni sök:
" nei klukkan er tólf."
gunni er nokkuð sleginn, en bendir dúllega á símann sinn,:
"ég er nokkuð viss um að klukkan sé ellefu"
dúllegi horfir á hann, horfir á úrið sitt og við sjáum lítið ljós kvikna í augntóftunum. bling:
"damn, Im on danish time"

strákurinn hafði þá verið í danmörku í síðustu viku og gleymt að stilla úrið sitt. síðan hafði hann lifað allan laugardaginn klukkutíma á eftir áætlun.. mig grunar að þórður sé fyrsti íslenski tímaferðalangurinn..

þetta var líklega ein af þessum had to be there sögum, eða varðst að vera á staðnum sögum..en það var líka kominn tíma á eina slíka

skip og bátar, bryggjur og plönBjörn Ingi

það er sko aldeilis blíðan úti maður..það fer sko ekki á milli mála. þetta er svona frosið hor í nös veður sem er svo hressandi.. kælir í manni sálina

það er margt sem kætir manns eðli þessa daganna. þá er ég ekki að tala um að eðlast.,þó mörgum finnist það eflaust fínt.., nei ég er að tala um, tja, ekki liverpool, og ekki tindastól, og ekki er það veðrið.. og ekki mikið djamm á manninum sem vinnur á kaffikrók aðra helgina og í útideild hina helgina..og hef ekki séð fjölskylduna í hálft ár..og flestir vinirnir er búnir að gorkúla sér niður hér og þar..og ekki get ég farið í fótbolta eða körfu..

svona þegar maður setur þetta svona niður á blað þá ætti kannski ekki mikið að kæta manns eðli, en einsog flestir vita kannski þá er ég með svo einfalt eðli.. bjórinn helst allavega kaldur og ísland er ekki hersetið af nasistum,. hvað þarf maður meira

bókatíðindin kominn, það vita allir hvað það þýðir, jólin eru á næsta leyti.. og þessi jól þarf ég ekki að fara í hið andlega krefjandi verkefni að lesa undir próf.. sem er nú annað sem kætir mitt eðli..kannski á ég eftir að sakna þess pínu..pínu pínu pons..

jújú dansinn dunar enn á því er enginn vafi

robertino romanticaBjörn Ingi

að lífið sé skjálfandi lítið gras

jæja, þá er þetta orðið klappað og klárt.. kallinn ætlar að víkka hugann og gerast víðsýnn maður að atvinnu.. ójá ég er á leið til árósa í náms, bjór og brúnkuferðí hálft ár..

það er svo sem ekki miklar fréttir nú til dags, það er víst enginn maður með mönnum nema að búa í árósum í einhvern tíma...maður er bara litinn hornauga annars. með hornaugu

ég er svona að vinna í planinu.. talaði við biggarann um að fá samastað á milli hans og margrétar og sjaldan sem ég hef séð kallinn jafn ánægðan..

margrét var hinsvegar ekki jafnánægð en henni fannst full hart að hafa mig og matta rú fyrir utan biggarann í rúminu,. held að hún hafi haft áhyggjur af því að ég myndi einoka sængina sem er svo sannarlega ekki í mínu eðli en þegar margrét setur fótinn niður þá er hann niðri.. ég veit sko hver í pilsinu á því heimili..

frekari upplýsinar má finna hér
www.skatiogskata.bloggar.is

það þýðir því að ég ætla að troða mér á kollegí í bundabúnk eða eitthvað þannig sem er víst einsog að vera á heimavist í tyrklandi.. allavega ráðlagði mentorinn minn mér að fá mér byssuleyfi, haglabyssu og skothelt vesti áður en ég kem..þannig að þið vitið hvað þið eigið að gefa mér í jólagjöf..

ég sem ætlaði að senda bara óhreina tauið í strætóinn til mor og far(strax byrjaður að æfa mig)..verður lítið úr því..

jæja, þá er ég búinn að koma þessu frá mér., má lesa í kvæði eftir mattías..

já eitt í viðbót.. mynd af emma, gott að hann heldur við í gamlar hefðir


á sundlaranum í gamla daga þá beittum við nefnilega þeirri aðferð á uppvaskið að við biðum með það þangað til að það kviknaði líf og það vaskaði sig sjálft upp.. emmi ætlar greinilega að nýta sér þetta lögmál á ruslið líka..ég veit fyrir víst að það mun virka..

fallegir mennBjörn Ingi

ólega erfið helgi að baki.. að baki ber hver nema að bróður eigir

ef satt skal segja þá hef ég lítið að segja þennan daginn.. í dag.. enda er mánudagur og ég hef áður gefið það út í máli og riti hvaða skoðun ég hef á þeim dögum

var að skoða netmiðil frá árósum áðan, hjá honum flugleiði aðalstein eða
www.mainstone.bloggar.is þar sem fleygt er fram þeirri athyglisverðri spurningu, um hver er ómyndarlegasti knattspyrnumaðurinn..

það er nú alveg típíkal með þessa man utd kalla hvað þeir þurfa alltaf að búa til svona neikvæða umræðu.. ekki ég, ég ætla að búa til jákvæða umræðu og set því upp kosningu til höfuðs ómyndarlegasta knattspyrnumaðurinn og mun mín kosning vera helguð þeim tilgangi að finna myndarlegasta knattspyrnumanninn..

svo ég hef raðað upp óumdeilda úrslitagrúppu, 5 myndarlegustu knattspyrnumenn sem hafa spilað í bretlandi fyrr og síðar sem ég er sannfærður að fái þverpólitískan stuðning.

hér koma tilfnefningar..

keppandi nr 1.: robbie fowler


fowler hefur margoft verið valinn myndarlegasti maður englands og ekki skemmir fyrir hvað hann hefur gott fjármálavit. t.d. hefur hann reynt fyrir sér í veðhlaupahesta businessinum og er hesturinn hans sem heitir horse gríðarlega efnilegur. ófáar dömurnar hafa fallið fyrir kyntöfrum robbie, t.d. ein spice girl og hún vanessa smith(líklega ekki rétt nafn)

keppandi nr. 2.: steve mcmanaman

steve hefur það með sér að hann hefur fallegasta hár sem fyrirfinnst. honum hefur margoft verið boðnir gull og grænir skógar fyrir að ljóstra upp leyndarmálinu en ávallt neitað. hann spilaði nokkur ár í madrid og fangaði þar ófá senjurita hjörtun með gullnu lokkunum sínum og leyndardómsfulla brosinu. hann hefur líka reynt fyrir sér í veðhlaupahestabransanum og er hesturinn hans, another horse einnig ákaflega efnilegur

keppandi nr. 3.: erik meijer

erik er hollendingur og er þessi bráðhuggulegi til venstre og verður líklega wild cardið í þessari kosningu. hann vakti miklar vinsældir í liverpool borg í kringum aldamótin síðustu fyrir hrjúfa karlmennsku og djúpa bassarödd. ég hef öruggar heimildir fyrir því að erik var seldur úr landi að eigin ósk á sínum tíma eftir að 7 æstar píur réðust inn á heimili hans einn maí morgun í von um snerta goðið.

keppandi nr.4.: dirk kyut

dirk er annar hollendingur og nýtilkominn í ensku deildinna. sagan segir að mcmanaman hafi sagt dirk leyndardóminná bakvið fallegt hár á fyllerí í austurríki. hvort sú saga er sönn veit ég ekki en annað er óumdeilt, dirk er með einkar sjarmerandi augnaráð.

keppandi nr. 5.: peter crouch

peter er mjög sterkur kantídat enda ákaflega huggulegur maður. ég veit allavega fyrir víst að hann er í gríðarmiklu uppáhaldi hjá fyrrum samleiganda mínum í goðalandinu enda kom ég einu sinni að henni þar sem hún var að skrifa "peter croch plús inga bjé samasem sönn ást" í dagbókina sína. hann er þó frátekinn og um daginn var kærastan hans valinn næst flottasta kærasta úrvaldsdeildarleikmann af hinu virta blaði sun. reyndar voru birtar myndir af henni í sama blaði þar sem hún var að taka kókaín og halda framhjá honum en það skiptir varla máli..

þá er bara um að gera sig og æfa sig vorið og kjósa rétt. gæti trúað að margir eigi eftir að eiga svefnlausar nætur enda er gríðarlega erfitt val fyrir höndum..

súkkupoppBjörn Ingi

ég fékk hugmynd,. dýfa poppi í heitt súkkulaði....

er ég á villgötum,. villgöltum

gamli nóiBjörn Ingi

var að leika mér með krökkunum í 6 og 7 bekk í dag..

í tilefni haloween eða allraheilagsmessu voru við með horror þemu þar sem börnin áttu meðal annars að búa til mínútu leikatriði sem átti að vera skelfilegt.. það er skelfing og ógn..

eitt atriðið byrjaði þannig að drengur gengur yfir sviðið þegar norn kemur askvaðandi og sveipar bandi yfir hálsinn á drengnum og byrjar að kyrkja hann. þá hoppa allir inn á sviðið og byrja að syngja gamli nói og þegar laginu lýkur dettur drengurinn niður dauður..

ég hélt ég yrði ekki eldri..þessi börn..

ps, hvor er betri, sissoko eða fletcher? ég hélt að þetta væri frekar augljóst en sumum finnst gaman að rembast einsog rjúpan við staur að berja höfuðið í stein..

Könnun

Hver er myndarlegasti knattspyrnumaðurinn?

Gagnasafn