Grundarinn
skollaskjólBjörn Ingi
fluttur suður í fjórða sinn á ævinni.en fyrsta sinn í kópavoginn, breyttir tímar kalla á breytt blogg,. www.blogg.visir.is/bjorningi svona gerist þetta fljóttallt fyrir ástinaBjörn Ingi
finnst engum öðrum kjánalegt að palli syngur, allt fyrir ástina, eina sem aldrei nóg er af... meðan freddy mercury söng, to much love will kill you....
MÓTSÖGN, maður hefði nú haldið að hommarnir væru eitthvað búnir að ræða þetta..líka slappt af palla því freddy getur ekkert svarað fyrir sig, löngu dauður maðurinn.. svo er ég líka sammála freddy. hann vissi sínu viti
en maðurinn kann að spila trans tónlist ójá, ég er enn með bítinn í mér eftir gærkvöldið
myndir af mérBjörn Ingi
á netmiðlum þessa vikuna má finna myndir frá leiknum í síðustu viku á móti álftanes. Fann nokkrar myndir af mér sem mér finnst eðlilegt að birta. svona fyrst þetta er nú bloggsíðan mín eftir allt saman
Hér má sjá hvernig ég hef masterað tæknina að hoppa úr tæklingu. sýndi nýjar víddir í þeirri tækni í þessum leik. ekki heldur segja mér að þessi kappi sé að reyna að fara í boltann. 
sjáið þið hvað hárið flagsar. þetta er eins og lexi black í gamla daga. ekki skrýtið, ég er á rúmlega 77 km hraða þarna og varnarmaðurinn má hafa sig allan við.
og svo abs. sjáið varnarmanninn, hann veit ekki í hvorn fótinn hann á að stíga. enda hefur hann ekki hugmynd hvert ég fór. eins gott að þessi mynd var tekin, annars væri hann örugglega ennþá að leita af mér. er einhver með email hjá þessum manni til að senda honum þessa mynd. bara svona svo hann viti hvað gerðist.
keimlíkar myndir. þessi mynd getur samt kveðið þá mýtu í kút að ég gefi ekki boltann þegar ég er í vítateignum. enda er ég greinilega í vítateignum, einn á móti markmanni og að leita af manni til að gefa á.. kannski einhverjir sem velta fyrir sér afhverju ég sný alltaf hægri hliðinni í ljósmyndarann. kannski halda menn að það sé afþví að ég viti af honum og snúi mér svona því ég veit að hægri vanginn myndast betur. staðreyndin er hinsvegar ekki alveg svo asnaleg. málið er að ég þjáist af þeim hvimleiða skjúkdómi að geta bara beygt til vinstri.. ég er á lyfjum.
langar að þakka tindastoll.is og valgeir kárasyni fyrir þessa fallegu myndir.
romeoBjörn Ingi
komið þið sæl og blessuðstórtíðindi í lífi olsons. fór út í búð og keypti mér nýjan montoya. montoya yngri, montoya the second, montoya junior.. ekki að það sé hægt að kaupa sér nýjan montoya, maður fer ekkert út í búð og kaupir sér nýtt barn eftir að maður er búinn að henda hinu.. þetta er svona meira einsog nýr bond. það er nefnilega helvíti erfitt að slá út sean connery þótt mér fannst craigarinn standa sig nokkuð vel
en nýji montoya er 2000 árgerð af bláum alfa romeo. nokkuð nettur, soldið rispaður enda vill ég ekki eitthvað sálarlaust ólifað kvikindi. ég vill fá lifaðann bíl með sál. eins og þessi., maður sér það langar leiðir að hann er með stórt hjarta og nett svalur á sama tíma.,
fótboltinn kominn á fullt skrið hjá mér. áttum leik við starfsmenn sláturhúss álftanesar í gær. fékk að vera frammi í seinni hálfleik en seinni hálfleiknum var lýst sem fréttaskot frá írak af hlutlausum netmiðlum í dag. maður fékk boltann í fætur, taldi upp á tvo og hoppaði svo upp og reyndi að telja hvað varnarmaðurinn náði að setja marga takka í fótlegginn á manni. stuð
vinnan soldið misst marks síðustu daga, danni loverboy er hættur og farinn að reyna fyrir sér á fasteignamarkaðnum fyrir sunnan eins og alþjóð veit.ég tilkynnti því starfsafgreiðslustúlkunum að þær þyrftu að byrja að stunda internetið og fylgjast með undirbúningstímabilinu hjá ensku knattspyrnuliðunum. mest allur tími minn hjá sýslumanni hefur nefnilega farið í málefnalegar umræður um kaup og sölu leikmanna hjá tottenham og liverpool í sumar.
en ég var búinn að lofa að gefa út tilkynningu þegar stórmyndin handrukkarar norðursins yrði tekin til sýninga. stórvirkið má sjá á síðunni hans dabba., www.davidorri.com . algjört meistarverk
sómalíaBjörn Ingi
munaði svo litlu að ég mynda fá að sofa í rúmi, annað skipti á íslandi á þessu ári. var meira segja lagstur í rekkju og sofnaður.
en þökk sé góðum mönnum þá var ég vakinn með rafmagnsgítar og með því að ryksuga andlitið á mér. tvisvar. svo ég reif mig á fætur og útskýrði fyrir þessu góðu mönnum að um dónaskap væri að ræða. hefði betur sleppt því, því á meðan voru öll rúmin í húsinu uppbókuð. svo sanngjarnt
í dag hefur samband mitt við sómalíu sófa verið í nánari kantinum enda hef ég þurft að hafa mig allan við að sleikja hana upp eftir að þessa tilraun mína til framhjálds í gær.það er líka á mörkunum að ég hafi staðið upp í dag..það hefur þá bara verið í algjörri neyð, til að sinna frumþörfum líkamans.
t.d. fékk ég stutta heimsókn áðan svo ég sýndi lit, reif mig á fætur til að fá mér kvöldmat. opnaði ískápinn og sá tyggjópakka. lét því eitt tyggjógúmmí duga.. ég hefði örugglega látið það duga í allt kvöld ef snorri hefði ekki komið heim og framreitt þennan fína rækjukokteil..já hvar væri maður án snorra síns..
en já, þetta er svona það sem ég hef bardúsað í dag.. dagur í lífi lings..
annars hefur margt á daga mína drifið. ég er t.d. árinu eldri. að eldast um ár á einum degi.magnað, átti fínan afmælisdag, komu nokkur góðmenni í köku og horfðu á 10fréttir., voða kósý stemning.,
en talandi um það. leyndi aðdáandinn sem sendi mér rósirnar má alveg fara að gefa sig fram,.ég hef ekki grænan svo..maður þarf nú að geta þakkað fyrir sig
margt sem gerðist þegar ég var 24 ára. vonandi verður 25 árið ekki viðburðaminna.. amma don minnti mig nú á það, að þegar karl faðir minn hélt upp á sinn 25 ára afmælisdag voru ekki nema 11 dagar í að ég fæddist.. ég er temmilega viss um að ég næ ekki að slá það., ég þyrfti allavega að vera ansi snöggur til. og reyndar þyrftu fleiri að vera snöggir til. þetta þyrfti nefnilega að verða ansi samhent átak.
já svona gengur þetta fyrir sig.,ætla að fara að búa um sómalíu.,bið að heilsa
maltextraktBjörn Ingi
jæja, ennþá ligg ég í sófanum hans snorra.. reyndar er það af illum kosti þetta skiptið. fengum nefnilega hauk skúlason í heimsókn um daginn.. jú mikið rétt, annar af hinu alræmda glæpapari sem braut sófaborðið., þetta skiptið braut hann skrifborðstólinn þegar hann fór í annarlegar leikfimisæfingar meðan hann sat ennþá í stólnum.. ójá, you better belive itnokkuð ljóst að mr hawk son of skúli, eða kussmann jónsson verður gert að sitja á gólfinu næst þegar hann kemur í heimsókn,. hann fær allavega ekki að setjast í sófann minn

fernando torres gerðist dýrasti leikmaður í sögu liverpool í dag. kemur ekki á óvart því það hefur lengi verið stefnan hjá okkur poolurum að kaupa alla spænskumælandi menn í heiminum. eitt er víst, töluvert vantar drenginn í að vera jafn myndarlegur og crouch og fowler..þetta er óttalegur taðskegglingur..maður vonar það besta bara
annars bara góður
peter panBjörn Ingi
ligg hérna í sófanum hans snorra. mitt annað heimili. það er sófinn. merkilegt hvað ég og þessi sófi náum saman. hann passar ekki einu sinni á mig. en svona gerist þetta. maður veit aldrei hverju maður tengist tilfinningaböndum..sérstaklega ekki svona tilfinningaverur eins og ég. sé stundum keilu út á götu og ég er bara ástfanginn. neee segi svona, en sófinn er samt góðurnokkuð góður á því bara. enda margt til að vera góður á. það verður víst blíða á morgun. svo var ég útskrifaður úr sjúkraþjálfun í dag. ekki að það sé eitthvað til að fagna. verð kominn þangað aftur í næstu viku. en þetta er svo sem byrjunin..
svo er ég að fá útborgað. sór þess blóðheit einn góðan dag í mars þegar ég var búinn að eyða hátt í 5 tímum í strætó á sama deginum að ég skyldi kaupa mér bíl í sumar. og það er nú með þessi heit sem maður sver með blóði, erfitt að brjóta þau..
en ætli ég skjótist ekki suður á næstunni. máti mér bíl. ég er náttúrulega að leita að bíl með sál. kaupi ekki sálarlausan bíl. eins og strætóar, þeir eru bílar með enga sál. þess vegna eru bara strætóar í helvíti. þannig að þar gengur maður annaðhvort í eld og brennistein eða fer með strætó. ég er ekki viss um hvort ég myndi velja,. vona bara að ég fari ekki til helvítis. það yrði bölvað bras
en ætli við gerum okkur ekki glaðan dag um helgina. svona fyrst maður hefur eigilega ekkert annað að gera. ég meina, ef maður hefur val um að gera sér glaðan dag eða gera sér leiðilegan dag þá er hálf kjánalegt að velja sér leiðilegan dag., en það er nú bara ég.
held að planið sé skotveiðar og pulsuátkeppni í 15 cm flokki.. annars er ég meðlimur í skemmtinefndin svo ég hef völdin. gæti breytt þessu í bjúguátkeppni ef ég vildi. það er svona að vera maður í valdastöðu.
ég ætlaði nú að segja eitthvað gáfulegri. það virðist alveg horfið úr mér. eins og gerist með gáfulega hluti. nei núna man ég það,.
ég kominn með ægilegann kæk. byrjaður að naga pappírsklemmur eins og ég eigi lífið að leysa. nokkuð viss um að ég eigi eftir að kyngja einni og deyja. og verða maðurinn sem var drepinn af pappírsklemmu. það yrði skelfilegt því ég er nokkuð viss um að allir sem deyja kjánalega þurfa að fara til helvítis og þá þyrfti ég að byrja að taka strætó aftur..það er því mikið í húfi fyrir mig að hætta þessum bölvanlega kæk..
en fyrir utan það..góður
fredagsbarBjörn Ingi
ég og snorri lágum yfir imbanum mánudagskvöld með fæturnar upp á nýja sófaborðinu hans snorra, ekki alveg orðnir góðir eftir helgina en þetta var svona að koma..svo segi ég svona út í loftið, "jæja snorri, er það ekki bara rólegheit næstu helgi"
þá sagði snorri;" jú er það ekki"...
svo kom pínu þögn..rétt á meðan við einbeittum okkur að þættinum í imbanum..
þá heyri ég snorra segja; " ég á reyndar afmæli á sunnudaginn".....
þar fór það..
kvarta ekki í dag, skellum upp grilli og höfum það nice, jafnvel opnum eina rauðvín eða svo..já þetta er ljúft líf
kristallBjörn Ingi
mættur á klakann. hefur tekið alveg viku að aðlagast íslenska samfélaginu aftur. erfiðast hefur verið að venjast því að sjá mikið af treflalausu fólki samankomið í einu. soldið eins og að sjá hóp af kviknöktu fólki hvert sem maður lítur. alveg á mörkunum að vera þægilegt..en þetta venst.
vinnan byrjuð. lýst vel á þetta. meiri vinna en ég hélt, nóg að læra og hef ekki þurft að læra á kaffivélina ennþá sem er víst fyrsta verk allra laganema á sýsluskrifstofum um landið.
er líka mjög sáttur með samastað minn en mr snorri snorri snorrason hefur í góðmennsku sinni leyft mér að krassa í sófanum sem er einstaklega mjúkur en mest er ég nú sáttur félagskapinn. miklu skemmtilegra að hafa svona eðalmenn eins og snorri í kringum sig heldur en að húka einn í einhverri kjallaraholu..
lenti samt í sérkennilegri lífsreynslu á laugardagsnóttina. straulaði heim í sófann til snor eftir góða skemmtun og góðan dag. kannski ekki alveg í stuði til að djamma meira svo sófinn góði heillaði mikið. dottaði aðeins og vakna við að snorri er að kynna mig fyrir fólki þegar ég ligg sofandi þarna í sófanum. fyrsta sem mér datt í hug, afhverju þarf að kynna mig hérna á sauðárkróki. rather household name myndi ég segja. svo ég ákvað að sýna svipaða gestrisni og snorri og opna allavega augun..
sé ég ekki hreim í land og sonum og heiðu í idol og svo eina eina stelpu sem ég hef séð einu sinni áður en þá var hún að læðast í rúmið mitt á menningarnótt án þess að ég hefði séð hana áður, en það er kannski önnur saga. en mikið var ég hlessa.. eg var alveg með what a fuck svip langt frá á sunnudagskvöld.
en svona er að búa með snorra. hann er sífellt að reyna að koma mér á óvart.. ætla að senda skaðabótakröfu á liðið sem braut sófaborðið hans sem þakklætisvott. það voru nú meiri glæpamennirnir
færdigBjörn Ingi
var að klára síðasta prófið..fékk 9, úti er 28 stiga hiti og brilljantín sól... er að fara í grill og lautarferð núna og er boðinn í tvö afmæli í kvöld...það liggur við að ég bresti í söng,.er ekki frá því að rokkballaðan lífið er yndislegt kemur fyrst í hugann., ætla að syngja það á íslensku, ensku og dönsku í kvöld..reyndar man ég ekki einu sinni íslenska textann en það hefur nú ekki stöðvað mig í gegnum tíðana., ég bý bara til eitthvað. þið efist??
lífið er yndislegt ooó, það er rétt að byrja hér
the life is so wonderful vvvooó, it is just the beginning
livet er sa dejligt oohh, det er lige begyndelsen.. ekki málið
að einn maður sé svona hæfileikaríkur, hreinlega bara ósanngjant fyrir ykkur hin
er jafnvel að spá og spekulera, að fá mér kokteil núna,., svona afþví að klukkan er korter í tvö á staðartíma og afþví að lífið er svo yndislegt...
svo og svo já.., áfram tindastóll í kvöld., myrðið þessa útlendinga
sjáumst von bráðar skal ég segja ykkur